OPIÐ Mán – Fim FRÁ 8:30 – 17:00 / Fös frá 8:00 – 16:00
+354 517 8000
ter Hürne

Avatara

Hönnunargólf

Avatara - Oak Deimos 1101250404

PVC-frítt hönnunargólf sem sameinar náttúrulegt útlit viðar og steins við eiginleika nútímalegs hönnunargólfs. Avatara er vatnshelt, slit- og rispuþolið og framleitt úr Talcusan® án PVC, klórs og hefðbundinna mýkingarefna.

Tæknilegar upplýsingar

TegundAvatara Design Floor
Notkunarstaðall23/33
Þykkt6 mm
Stærð1290 x 246 x 6 mm
FormatBreiður planki
Hljóðvist16 dB
SlitþolsflokkurAC5
FösunFasað á 4 hliðum
LæsingLOCKitEASY
Heildarþyngd (kg/m²)7,21 kg/m²
Pakkning (m²)2,221
Stk. í pakka7
Þyngd pakka16,027 kg
HálkuviðnámR11
BrunaþolBfl-S1
LagningaraðferðFljótandi
YfirborðBurstað
GljástigExtra Matt

Skjöl

Uppbygging Avatara

1. Varnarlag - Nákvæm áferð með leysitækni

Varnarlagið ver gólfefnið og gerir það sérstaklega:

  • Sterkt og rispuþolið
  • Auðvelt að þrífa og viðhalda
  • Gefur gólfefninu hlýleika
  • Gerir það mjúkt og hljóðlátt að ganga á


Nákvæm áferð með leysitækni


Yfirborðsáferðin er skorin í efnið með leysitækni þannig að:

  • Áferðin (upphleypt munstur) passar nákvæmlega við viðarmynstrið (prentað mynstur)
  • Þú finnur með hendinni það sem þú sérð með augunum
  • Gefur raunverulega viðartilfinningu bæði sjónrænt og snertanlega
2. Stafræn prenttækni á Talcusan undirstöðuplötu

Myndin (viðar-, stein- eða annað mynstur) er prentuð beint á burðarplötunna með hjálp stafrænnar tækni.


Við notum stafrænt ferli sem gerir okkur kleift að:

  • Prenta beint á stórar tilbúnar Talcusan-undirstöðuplötur
  • Skapa munstur með mikilli nákvæmni og dýpt
  • Framleiða mun fjölbreyttari, einstök útlitsmynstur með náttúrulegum karakter
3. Örjöfnun með grunni.

Örjöfnun og grunnun (Micro-levelling with primer)

  • Örjöfnun jafnar út minniháttar ójöfnur á yfirborði Talcusan-undirstöðuplötunar.
  • Að því loknu er grunnur borinn á til að búa undirstöðuplötuna undir prentunina
  • Samspil þessara tveggja skrefa – slétt yfirborð og rétt grunnun – gerir okkur kleift að prenta:
    • Háupplausna mynstur
    • Með fullkominni nákvæmni og dýpt
    • Sem leiðir af sér áferð sem lítur út eins og alvöru efni, t.d. viður eða stein
4. Talcusan-undirstöðuplata

Talcusan-undirstöðuplatan gegnir nokkrum mikilvægum hlutverkum.

Hún heldur plankanum stöðugum í lögun og stærð og er jafnframt vatnsþolin.

Þegar undirstöðuplatan er sameinuð þriðja laginu – grunnlaginu (primer) – myndast yfirborð sem prentmyndin er prentuð á.

Þetta er óhefðbundin aðferð, en hún hefur þann kost að skapa mynstur með sérstaklega skýrum og glæsilegum útlitseiginleikum.

5. SoftSense högg- og hljóðeinangrun

Neðsta lagið er SoftSense högg- og hljóðeinangrunarlagið.

Það vinnur fullkomlega saman með Talcusan-undirstöðuplötunni.

Niðurstaðan er mun minna högg- og ganghljóð og þægileg rýmishljóðvist./